Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 05. október 2020 16:08
Elvar Geir Magnússon
Hudson-Odoi áfram hjá Chelsea
Mynd: Getty Images
Vængmaðurinn Callum Hudson-Odoi mun ekki yfirgefa Chelsea í dag en BBC greinir frá þessu.

Hudson-Odoi er 19 ára gamall og hefur verið orðaður við Bayern München.

Frank Lampard, stjóri Chelsea, segir að Hudson-Odoi sé hluti af áætlunum hans fyrir tímabilið.

Bayern náði að bæta við sig vængmanni með því að fá Douglas Costa fyrr í dag en glugganum í Þýskalandi hefur nú verið lokað.

Hudson-Odoi hefur byrjað síðustu tvo leiki Chelsea en það er mikil samkeppni um fremstu stöður hjá liðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner