Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   mán 06. janúar 2020 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England í dag - Arsenal tekur á móti Leeds
Mynd: Getty Images
Arsenal tekur á móti Leeds í eina leik dagsins í enska boltanum. Liðin eigast við í kvöld og verður leikurinn sýndur beint á Stöð 2 Sport 2.

Um áhugaverða viðureign er að ræða þar sem gengi Arsenal hefur verið ansi dapurt á tímabilinu.

Liðið hefur þó virkað jákvæðara undir stjórn nýráðins stjóra Mikel Arteta, sem er þó aðeins búinn að vinna einn leik af þremur frá því að hann tók við skömmu fyrir jól.

Leeds er í toppbaráttu Championship deildarinnar og með sterkan leikmannahóp. Lærisveinar Marcelo Bielsa munu ekki vera auðveld bráð á Emirates leikvanginum.

Leikur kvöldsins:
19:56 Arsenal - Leeds (Stöð 2 Sport 2)
Athugasemdir
banner
banner