Sancho, Sesko, Mac Allister, Ten Hag, Raya og fleiri góðir koma við sögu
banner
   fös 10. maí 2024 17:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Axel Máni skrifar undir í Árbænum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnarmaðurinn Axel Máni Guðbjörnsson hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélagið sitt Fylki en fyrri samningur hans rann út eftir síðasta tímabil.

Nýr samningur gildir út tímabilið 2027.

Axel Máni verður 22 ára í sumar og spilaði sinn fyrsta leik með liðinu árið 2020.

Á síðasta tímabili lék hann átta leiki með Fylki í Bestu deildinni og einn í bikarnum. Hann er í námi í Bandaríkjunum.

Hann er eldri bróðir Aron Snæs (2004) sem lék fyrr á þessu tímabili sinn fyrsta deildarleik með Fylki.
Athugasemdir
banner
banner
banner