Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 06. janúar 2023 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fabregas og Wilshere sameinuðu krafta sína á nýjan leik
Cesc Fabregas.
Cesc Fabregas.
Mynd: Getty Images
Spænski miðjumaðurinn Cesc Fabregas hefur undanfarna daga verið í Lundúnum þar sem hann er að sækja sér reynslu á æfingasvæði Arsenal.

Fabregas er núna á mála hjá Como á Ítalíu en það er þriggja vikna frí núna og nýtti Spánverjinn sér það til að fara aftur til London.

Fabregas stefnir á að fara í þjálfun þegar ferlinum lýkur og er hann að sækja sér reynslu hjá sínu gamla félagi. Hann er að hjálpa til við þjálfun U18 liðsins.

Jack Wilshere, fyrrum félagi Fabregas af miðsvæðinu hjá Arsenal, er núna þjálfari U18 liðsins. Þeir fengu þarna tækifæri til að vinna aftur saman.

Fabregas hefur talað um það að draumur sinn sé að stýra liði í ensku úrvalsdeildinni einhvern tímann.
Athugasemdir
banner
banner
banner