Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 06. janúar 2023 14:30
Elvar Geir Magnússon
Spilaði Covid smitaður á HM í Katar
Mynd: EPA
Marokkóski varnarmaðurinn Noussair Mazraoui þarf að taka sér smá hlé frá fótboltanum en hann er með bólgu í hjartavef eftir að hafa veikst af Covid-19.

Félag hans, þýska stórliðið Bayern München, hefur greint frá því að Mazraoui hafi spilað með Covid á HM í Katar.

Hans síðasti leikur fyrir Marokkó á mótinu var undanúrslitaleikurinn gegn Frakklandi en hann hafði misst af 8-liða úrslitum vegna veirunnar.

Mazraoui er 25 ára og hefur spilað ellefu leiki með Bayern í þýsku deildinni á þessu tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner