Leiknir Reykjavík hafði betur gegn KR í æfingaleik sem fram fór í Vesturbæ í dag.
Hollendingurinn Dylan Chiazor, sem er á reynslu hjá Leikni, kom þeim yfir en Ægir Jarl Jónasson jafnaði fyrir KR. Sævar Atli Magnússon, fyrirliði Leiknis, kom þeim aftur yfir og hinn efnilegi Róbert Quental innsiglaði sigurinn. Óskar Örn Hauksson, leikmaður KR, klúðraði vítaspyrnu í leiknum.
Þá vann Keflavík öruggan sigur á Gróttu í Reykjaneshöllinni, 4-0. Keflavík eru nýliðar í Pepsi Max-deild kvenna en Grótta leikur í Lengjudeild kvenna.
KR 1 - 3 Leiknir R.
0-1 Dylan Chiazor
1-1 Ægir Jarl Jónasson
1-2 Sævar Atli Magnússon
1-3 Robert Quental
Keflavík 4 - 0 Grótta (kvenna)
Markaskorarar Keflavíkur: Eva Lind Daníelsdóttir 2, Dröfn Einarsdóttir, Natasha Anasi.
Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir