Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   mið 06. mars 2024 10:00
Ívan Guðjón Baldursson
Bolasie fer í brasilíska boltann
Mynd: Getty Images
Fabrizio Romano segir það vera svo gott sem staðfest að kantmaðurinn Yannick Bolasie sé að skipta yfir til Circiúma E.C. í brasilíska boltanum.

Circiúma eru nýliðar í efstu deild í Brasilíu og verður fróðlegt að sjá hvernig Bolasie tekst að fóta sig vestanhafs.

Bolasie er 34 ára gamall og hefur meðal annars leikið fyrir Crystal Palace, Everton, Aston Villa og Sporting CP á ferlinum, auk þess að eiga 50 landsleiki að baki fyrir Austur-Kongó.

Bolasie samdi við Swansea City utan félagsskiptaglugga í lok nóvember og kom við sögu í tólf leikjum eftir það án þess að skora eða leggja upp mark, áður en hann rifti samningnum við Svanina aðeins tveimur mánuðum eftir að hafa gengið til liðs við félagið.
Athugasemdir
banner
banner
banner