Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 06. mars 2024 22:25
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu stórkostlega hælsendingu Orra gegn Evrópumeisturunum
Orri Steinn Óskarsson
Orri Steinn Óskarsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenski landsliðsmaðurinn Orri Steinn Óskarsson átti magnað augnablik í leik Manchester City og FCK í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar á Etihad-í kvöld.

Orri var þarna að snúa aftur í lið FCK eftir að hafa ekki verið í liðinu í síðustu fjórum leikjum.

Hann snéri aftur með stæl en þegar tæpur hálftími var liðinn átti hann stórkostlega hælsendingu á Mohamed Elyounoussi sem minnkaði muninn fyrir FCK.

Þarna var Orri að mæta besta liði heims og tók ískalda ákvörðun, sem heppnaðist fullkomlega.

Hægt er að sjá markið og stoðsendinguna í spilaranum hér fyrir neðan. Leiknum lauk með 3-1 sigri Man City og því samanlagt 6-2.


Athugasemdir
banner
banner
banner