Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 06. júní 2022 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Owen upplifir sína verstu martröð - Dóttir hans í Love Island
Michael Owen.
Michael Owen.
Mynd: Getty Images
Í kvöld hefst ný útgáfa af breska raunveruleikaþættinum Love Island. Um er að þætti sem eru mjög vinsælir hérna á Íslandi.

Það er búið að kynna keppendurna til leiks og það hefur vakt mikla athygli að þar er ung stúlka sem er með tengsl inn í fótboltaheiminn. Gemma Owen er einn af þáttakendunum en faðir hennar er Michael Owen, fyrrum landsliðsmaður Englands.

Owen, sem spilaði bæði fyrir Liverpool, Real Madrid, Newcastle og Manchester United á glæstum ferli, segir að þetta sé versta martröð hvers föður.

„Þetta er örugglega versta martröð mín fyrir mig sem föður hennar, en þú verður að styðja það sem hún tekur sér fyrir hendur," sagði Owen við ITV.

Þættirnir ganga sem sagt út á það að ákveðinn fjöldi einstaklinga býr saman í af­skekktri glæsi­villu og leita þar að ástinni.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner