Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 06. nóvember 2020 23:50
Victor Pálsson
Watzke: Pirrandi hversu góður Kimmich er
Mynd: Getty Images
Hans-Joachim Watzke, stjórnarformaður Dortmund, hefur nefnt sinn uppáhalds leikmann í Bayern Munchen en þessi tvö lið mætast á morgun.

Leikmaðurinn umtalaði er Joshua Kimmich sem hefur fest sig í sessi í liði Bayern og er einn sá besti í sinni stöðu í dag.

Kimmich spilar aðallega hægri bakvörð á Allianz Arena og á að baki 50 landsleiki fyrir Þýskaland.

„Sá leikmaður sem mér hefur líkað best við síðustu ár er Joshua Kimich," sagði Watzke við Sport Bild.

„Það er í raun pirrandi hversu góður hann er og hann skorar alltaf gegn okkur. Hvernig hann gerir það er magnað. Hann hefur þroskast á ótrúlegan hátt."

„Þetta er strákur sem ég er gríðarlega hrifinn af."

Leikur Dortmund og Bayern fer fram á heimavelli þess fyrrnefnda og hefst klukkan 17:30 á morgun.

Athugasemdir
banner
banner
banner