Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
banner
   fim 07. mars 2024 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Guardiola um leikjadagskrá Man City: Þeir myndu segja mér að halda kjafti
Mynd: Getty Images
Álagið á Manchester City verður mikið næstu vikur og ekki er enska úrvalsdeildin að hjálpa til við að raða leikjunum á sanngjarnan hátt en Pep Guardiola. stjóri félagsins, segir að svona eru bara hlutirnir.

Liðið spilaði gegn FCK aðeins þremur dögum eftir að hafa spilað við Manchester United og þá á dagskráin eftir að verða heldur strembin í þessum mánuði.

Guardiola lýsti yfir vonbrigðum sínum með hvernig leikjunum væri raðað niður, en játaði sig samt sigraðan.

„Tala við ensku úrvalsdeildina? Þeir myndu bara segj: „Við borgum mikla peninga, haltu kjafti“,“ sagði Guardiola á blaðamannafundi.

Guardiola er ekki sá eini sem hefur kvartað yfir þessu vandamáli síðustu ár en það hefur Jürgen Klopp, stjóri Liverpool, einnig gert ásamt fleiri stjórum.
Athugasemdir
banner
banner
banner