Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 07. júlí 2018 17:16
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Keita og Fabinho spiluðu er Liverpool vann 7-0
Keita þreytti frumraun sína.
Keita þreytti frumraun sína.
Mynd: Getty Images
Liverpool spilaði æfingaleik við Chester, sem leikur í 6. deild Englands, á sama tíma og England sigraði Svíþjóð á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi.

Liverpool átti ekki í miklum vandræðum með að knýja fram sigur í leiknum, alls ekki.

Mörk Liverpool skoruðu: Harry Wilson 2, Daniel Sturridge 2, Ryan Kent, James Milner, Danny Ings.

Naby Keita og Fabinho þreyttu frumraun sína með Liverpool í dag. Fabinho spilaði fyrri hálfleikinn og Keita þann seinni.



Athugasemdir
banner
banner
banner