Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 07. júlí 2021 12:22
Elvar Geir Magnússon
Roma að ganga frá kaupum á Rui Patricio
Það er markvarðahringekja framundan.
Það er markvarðahringekja framundan.
Mynd: Getty Images
Íþróttafréttamaðurinn Fabrizio Romano greinir frá því á Twitter að ítalska félagið Roma sé að ganga frá kaupum á markverðinum portúgalska Rui Patricio frá Wolves.

Annar portúgalskur markvörður, José Sá, muni þá ganga í raðir Úlfanna og fylla skarð Patricio. Sá er 28 ára og hefur spilað fyrir Olympiacos í Grikklandi síðan 2018.

Spænski markvörðurinn Pau Lopez mun fara frá Roma á láni til Marseille en franska félagið er með ákvæði um að geta keypt hann eftir að lánssamningnum lýkur.

Rui Patricio er 33 ára og er talið að Roma kaupi hann á um 10 milljónir evra. Hann hefur varið mark Wolves síðan 2018.


Athugasemdir
banner
banner
banner