Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 07. október 2021 18:32
Victor Pálsson
Flick og Tuchel vinna saman
Mynd: EPA
Þeir Hansi Flick og Thomas Tuchel vinna saman að því að koma framherjanum Timo Werner í gang á nýjan leik.

Bild í Þýskalandi fjallar um þetta mál en Werner er leikmaður Chelsea undir Tuchel og þýska landsliðsins undir Flick.

Þjóðverjinn hefur ekki byrjað leiktíðina með Chelsea mjög sannfærandi en skoraði þó í síðasta leik liðsins í deildinni gegn Southampton.

Sjálfstraust Werner virðist vera gríðarlega lítið en hann klikkaði einnig á dauðafæri fyrr á árinu er Þýskaland mætti Íslandi hér heima í undankeppni HM.

Samkvæmt Bild þá vinna þjálfararnir tveir saman og ræða málin hvernig er best að koma Werner af stað á ný en hann raðaði áður inn mörkum með RB Leipzig í Þýskalandi.

Flick ferðaðist til London nýlega og hitti þar kollega sinn hjá Chelsea en hann undirbýr þýska liðið fyrir HM í Katar á næsta ári.
Athugasemdir
banner
banner
banner