Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 07. október 2021 20:21
Victor Pálsson
Perez: Vonum að allt verði klárt 1. janúar
Mbappe á leiðinni?
Mbappe á leiðinni?
Mynd: Getty Images
Florentino Perez, forseti Real Madrid, hefur gefið í skyn að Kylian Mbappe gæti verið á leiðinni til félagsins frá Paris Saint-Germain.

Perez var spurður út í mögulega komu Mbappe í gær og bauð þá upp á ansi áhugavert svar.

„Við vonum að allt verði klárt þann 1. Janúar,“ sagði Perez en Mbappe má ræða við önnur félög í byrjun næsta árs.

Ástæðan er sú að Frakkinn verður samningslaus næsta sumar og hefur ekki viljað framlengja í París.

PSG er þó enn að reyna að sannfæra Mbappe um að skrifa undir en hann er einn allra besti framherji heims um þessar mundir.

Mbappe gæti endað á að fara frítt til Real sem væri skellur fyrir franska félagið fjárhagslega.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner