Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 07. nóvember 2020 15:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fernandes: Vissum hvað við þyrftum að gera og gerðum það
Fernandes fagnar marki.
Fernandes fagnar marki.
Mynd: Getty Images
Bruno Fernandes var allt í öllu í sigri Manchester United á Everton á Goodison Park. Hann skoraði tvö og lagði upp eitt í 3-1 sigir United.

„Þetta var frábær endir á leiknum. Við vissum hvað við þyrftum að gera í dag og við gerðum það vel," sagði Fernandes í samtali við BT Sport en hann lagði upp þriðja markið í uppbótartíma fyrir Edinson Cavani.

„Við gerðum nokkur mistök í seinni hálfleiknum og við náðum ekki að halda boltanum nægilega mikið. Við brugðumst mjög vel við eftir fyrsta markið í leiknum og gerðum það sem við þurftum að gera."

„Við vitum að við erum með gæði. Við lögðum mikið á okkur fyrir sigur í dag. Það var erfitt að jafna sig eftir leikinn gegn Istanbul Basaksehir."

„Við vitum inni í búningsklefanum hvað við þurfum að gera. Allir þurfa að vera leiðtogar," sagði Fernandes en United er núna í 13. sæti með tíu stig eftir sjö leiki.
Athugasemdir
banner
banner
banner