Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 08. janúar 2020 19:35
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Myndband: Kroos kom Real yfir með marki beint úr hornspyrnu
Mynd: Getty Images
Real Madrid og Valencia leika nú undanúrslitum spænska ofurbikarsins. Leikið er á King Abdullah leikvangingum í Sádí Arabíu.

Toni Kroos kom Real Madrid yfir með marki beint úr hornspyrnu á 15. mínútu.

Kroos var fljótur að hugsa og tók spyrnuna snöggt og markvörður Valencia, Jaume Domenech, var ekki viðbúinn. Domenech var að ræða við sína menn í teignum og þetta sá Kroos og lét vaða.

Myndband af markinu má sjá hér að neðan. Þegar þetta er skrifað er staðan 0-1 fyrir Real Madrid og búnar eru um 34 mínútur.


Athugasemdir
banner
banner
banner