Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 08. janúar 2023 23:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Abraham: Guði sé lof að ég var á réttum stað
Mynd: EPA

Tammy Abraham var hetja Roma þegar hann jafnaði metin í 2-2 í uppbótartíma gegn AC Milan í ítölsku deildinni í kvöld.


Hann var réttur maður á réttum stað þegar markvörður Ciprian Tatarusanu markvörður AC Milan varði boltann út í teiginn eftir skalla frá Nemanja Matic.

„Ég hugsaði með mér þegar við fengum aukaspyrnuna að ég yrði að vera klár. Þegar ég sá Matic fara upp í skallaboltann, markmaðurinn varði þetta, boltinn kom til m´n og guði sé lof að ég var á réttum stað," sagði Abraham.

Þetta var gott stig fyrir Roma sem er í 6. sæti með 31 stig rétt eins og Lazio sem er í sætinu fyrir ofan. AC Milan tapaði mikilvægum stigum í toppbarátunni.

Liðið er með 37 stig í 3. sæti eins og Juventus en liðin eru sjö stigum á eftir toppliði Napoli.


Athugasemdir
banner
banner
banner