KF 3 - 0 Einherji
1-0 Kristófer Andri Ólafsson ('46)
2-0 Þorsteinn Már Þorvaldsson ('52)
3-0 Marinó Snær Birgisson ('82)
1-0 Kristófer Andri Ólafsson ('46)
2-0 Þorsteinn Már Þorvaldsson ('52)
3-0 Marinó Snær Birgisson ('82)
KF er komið á blað í Lengjubikarnum eftir sigur á Einherja í B-deild mótsins í gærkvöldi.
Leikurinn var spilaður í Boganum á Akureyri og var fyrri hálfleikurinn rólegur, ekkert skorað.
Á innan við 10 mínútum í seinni hálfleiknum var KF komið í 2-0 með mörkum frá Kristófer Andra Ólafssyni og Þorsteini Má Þorvaldssyni.
Marinó Snær Birgisson gerði þriðja mark KF áður en leiknum lauk og þar við sat, lokatölur 3-0 fyrir KF.
Þetta voru fyrstu þrjú stig KF en þetta var annar leikur liðsins. Í fyrsta leiknum tapaði KF 5-0 fyrir Völsungi en liðið sýndi karakter og gerði betur í þessum leik. Einherji hefur tapað báðum sínum leikjum.
Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir