Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   fös 08. mars 2024 21:14
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Elías Már hetja NAC Breda - Willum og félagar töpuðu gegn toppliðinu
Mynd: NAC Breda

Elías Már Ómarsson var hetja NAC Breda þegar liðið lagði Jong Ajax á útivelli í næst efstu deild í Hollandi í kvöld.


Hann skoraði eina mark leiksins eftir um klukkutíma leik en NAC Breda er í 7. sæti með 46 stig eftir sigurinn. Þetta er annar leikurinn í röð sem Elías Már kemur að marki en hann lagði upp eitt í 3-1 sigri liðsins á Jong Utrecht um síðustu helgi.

Rúnar Þór Sigurgeirsson kom inn á sem varamaður í 3-0 sigri Willem II gegn Eindhoven FC. Liðið er á toppnum með 60 stig.

Willum Þór Willumsson spilaði allan leikinn í 1-0 tapi Go Ahead Eagles gegn PSV i efstu deild. Go Ahead Eagles er í 6. sæti með 37 stig en PSV er á toppnum með 69 stig.

Stefán Ingi Sigurðarson var ónotaður varamaður þegar Patro Eisden gerði 2-2 jafntefli gegn u23 ára liði Genk í næst efstu deild í Belgíu. Patro Eisden er í 4. sæti með 41 stig, sex stigum á eftir toppliði Beerschot.


Athugasemdir
banner
banner
banner