Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 08. mars 2024 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Keane birtir skemmtilega mynd - „Sendið okkur skilaboð"
Roy Keane.
Roy Keane.
Mynd: Getty Images
Roy Keane birti í gær sína fyrstu mynd á samfélagsmiðlinum Instagram í tæp tvö ár og er óhætt að segja að það hafi verið skemmtileg mynd sem hann birti.

Keane mætti til leiks á Instagram snemma árs 2021 og var fljótlega kominn með tvær milljónir fylgjenda. Hann hætti hins vegar að birta myndir sumarið 2022.

Í gær sneri Keane hins vegar aftur og birti mynd af sér úr bátsferð með vini sínum og fyrrum liðsfélaga, Ole Gunnar Solskjær.

Við myndina skrifar hann: „Sendið okkur skilaboð ef ykkur vantar stjóra."

Solskjær er enn án starfs eftir að hafa yfirgefið Manchester United árið 2021 og Keane hefur verið án félags frá því hann yfirgaf Nottingham Forest árið 2019. Það væri gaman að sjá þá snúa aftur í stjórastarf einhvers staðar.


Athugasemdir
banner
banner