Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 08. apríl 2018 09:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Aubameyang: Reynslan hjálpaði mér mikið við að aðlagast
Mynd: Getty Images
Pierre-Emerick Aubameyang leikmaður Arsenal segir að reynslan hafi hjálpað honum mikið við að venjast lífinu á Englandi en hann kom til Arsenal frá Dortmund í janúar.

„Ég ferðaðist mikið þegar ég var yngri vegna þess að pabbi minn var fótboltamaður," sagði Aubameyang í viðtali við heimasíðu Arsenal.

„Ég hef upplifað marga menningarheima og mörg tungumál svo það er mjög gott að hafa þá reynslu með sér þegar maður flytur á milli landa, reynslan hjálpaði mér klárlega mikið við að aðlagast."

Aubameyang og félagar hans í Arsenal mæta Southampton í dag á Emirates leikvanginum klukkan 13:15.
Athugasemdir
banner