Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   sun 08. júlí 2018 16:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ajax staðfestir áhuga sinn á Daley Blind
Fer Blind heim til Hollands?
Fer Blind heim til Hollands?
Mynd: Getty Images
Ajax hefur áhuga á því að fá Daley Blind aftur frá Manchester United. Þetta staðfestir þjálfari liðsins, Erik ten Hag.

Hinn 28 ára gamli Blind skrifaði undir fimm ára samning við United þegar hann gekk í raðir félagsins frá Ajax árið 2014. Hann er að fara inn í sitt síðasta samningsár.

Blind hefur spilað 90 leiki á fjórum árum hjá United en hann féll ansi aftarlega í goggunarröðina hjá Jose Mourinho á síðasta tímabili.

Ajax er tilbúið að taka aftur við Blind.

„Hann er leikmaður með mikla reynslu, í ensku úrvalsdeildinni og með hollenska landsliðinu," sagði Ten Hag um Blind.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner