Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   lau 09. mars 2024 15:59
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Alexandra í úrslit eftir sigur gegn Söru Björk - Bayern með sigur
Mynd: Getty Images

Alexandra Jóhannsdóttir er komin í úrslit ítalska bikarsins með Fiorentina eftir sigur á Söru Björk Gunnarsdóttur og stöllum í Juventus í dag.


Alexandra lék allan leikinn en Fiorentina vann leikinn 3-1 og samtals 4-1 en Sara Björk kom inn á sem varamaður eftir klukkutíma leik. Fiorentina mætir annað hvort AC Milan eða Roma í úrslitum en liðin mætast á morgun og Roma er með 2-0 forystu í einvíginu.

Hafrún Rakel Halldórsdóttir og Kristín Dís Árnadóttir voru í byrjunarliði Bröndby sem vann 2-0 sigur á Kolding í átta liða úrslitum danska bikarsins.

Glódís Perla Viggósdóttir var að venju í byrjunarliði Bayern þegar liðið lagði Frankfurt 2-1. Bayern er með 39 stig en Sveindís Jane Jónsdóttir og stöllur í Wolfsburg eru í 2. sæti með 35 stig en liðið spilar gegn Leipzig á mánudaginn.

Selma Sól Magnúsdóttir spilaði allan leikinn hjá Nurnberg þegar liðið tapaði 2-0 gegn Hoffenheim. Nurnberg er 11. og næst neðsta sæti með 8 stig, þremur stigum frá öruggu sæti.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner