Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 09. mars 2024 11:37
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Byrjunarlið Man Utd og Everton: Bæði lið óbreytt
Rashford er í byrjunarliðinu en Hojlund enn á meiðslalistanum
Rashford er í byrjunarliðinu en Hojlund enn á meiðslalistanum
Mynd: Getty Images

Manchester United fær Everton í heimsókn á Old Trafford í dag.


Erik ten Hag og Sean Dyche stilla báðir upp óbreyttum liðum frá því um síðustu helgi.

United tapaði í grannslagnum gegn Man City en Jonny Evans og Marcus Rashford eru klárir í slaginn eftir að hafa þurft að fara af velli gegn City vegna meiðsla.

Dyche stillir upp sama liði og tapaði gegn West Ham á Goodison Park um síðustu helgi. Idrissa Gueye er ekki klár í slaginn og er því ekki í leikmannahópnum.

Manchester United: Onana, Dalot, Varane, Evans, Lindelof, Casemiro, Mainoo, Garnacho, McTominay, Bruno Fernandes, Rashford

Everton: Pickford, Godfrey, Tarkowski, Branthwaite, Mykolenko, Harrison, Onana, Garner, McNeil, Doucoure, Beto


Athugasemdir
banner
banner