Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 09. september 2020 17:00
Magnús Már Einarsson
Pablo og Daníel Hafsteins í banni í stórleikjunum
Daníel Hafsteinsson.
Daníel Hafsteinsson.
Mynd: Hulda Margrét
Pablo Punyed, miðjumaður KR, og Daníel Hafsteinsson, miðjumaður FH, taka báðir út leikbann í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins á morgun.

Daníel verður í banni þegar FH mætir Stjörnunni á Kaplakrikavelli klukkan 16:30.

Pablo verður í banni þegar KR mætir Breiðabliki í öðrum stórleik á Kópavogsvelli klukkan 19:15.

Leikmenn fara í leikbann fyrir tvö gul spjöld og báðir leikmennirnir fengu gult spjald í 16 og 32-liða úrslitum.

Daníel fékk gul spjöld gegn Þór og Þrótti en Pablo gegn Vængjum Júpíters og Fjölni.
Athugasemdir
banner
banner