Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 10. janúar 2020 14:00
Magnús Már Einarsson
Klopp: Var Mourinho markvörður?
Mynd: Getty Images
Tottenham og Liverpool mætast í ensku úrvalsdeildinni klukkan 17:30 á morgun.

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, var spurður að því á fréttamannafundi í dag hvort hann hafi verið betri leikmaður en Mourinho.

Klopp spilaði í Þýskalandi á sínum tíma á meðan Mourinho spilaði sem miðjumaður í Portúgal.

Klopp vissi ekki hvaða stöðu Mourinho hafði spilað og spurði á fréttamannafundinum í dag hvort hann hefði verið markvörður.

Fréttamennirnir á svæðinu höfðu ekki svör klár en á endanum komust menn að því að Mourinho hefði verið miðjumaður. Þetta má sjá á myndbandinu hér að neðan.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner