Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 10. janúar 2020 17:45
Elvar Geir Magnússon
Líkleg byrjunarlið Tottenham og Liverpool
Mynd: Guardian
Topplið Liverpool heimsækir Jose Mourinho og lærisveina í Tottenham í ensku úrvalsdeildinni á morgun laugardag.

Leikurinn verður 17:30 og í beinni útsendingu á Síminn Sport.

Harry Kane og Moussa Sissoko eru á meiðslalista Tottenham og verða frá fram í apríl.

Tottenham hefur ekki vegnað vel að undanförnu en Tanguy Ndombele er enn fjarri góðu gamni og þeir Danny Rose og Harry Winks eru tæpir fyrir leikinn.

James Milner og Naby Keita eru meiddir hjá Liverpool.

Toppliðið mun gera fjölmargar breytingar eftir að hafa hvílt menn í bikarsigrinum gegn Everton.

Dejan Lovren og Fabinho ættu að geta spilað gegn Manchester United um næstu helgi en Joel Matip er enn meiddur.

Liverpool er með þrettán stiga forystu í deildinni en Tottenham er í sjötta sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner