Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 10. janúar 2020 21:42
Brynjar Ingi Erluson
Reina í læknisskoðun hjá Aston Villa á mánudaginn
Pepe Reina
Pepe Reina
Mynd: Getty Images
Spænski markvörðurinn Pepe Reina gengur til liðs við Aston Villa í næstu viku en hann kemur á láni frá AC Milan. Telegraph og aðrir enskir miðlar fullyrða þetta.

Reina er 37 ára gamall en hann hefur verið á mála hjá Milan síðustu tvö árin.

Hann hefur lítið fengið að spreyta sig hjá Milan þar sem Gianluigi Donnarumma er búinn að eigna sér stöðuna og ljóst að Reina vill fá meiri spiltíma.

Ensku miðlarnir fullyrða í kvöld að Aston Villa og AC Milan hafi náð samkomulagi um Reina og að hann verði lánaður út þessa leiktíð en gengið verður frá samningum snemma í næstu viku.

Reina þekkir vel til á Englandi en hann lék átta tímabil með Liverpool frá 2005 til 2013.

Hann mun nú berjast við Orjan Nyland um markvarðarstöðuna en Tom Heaton er frá vegna hnémeiðsla.
Athugasemdir
banner
banner