Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 10. september 2021 23:00
Victor Pálsson
Aguero harðneitar sögusögnunum: Bullað um einhverja klásúlu
Mynd: Getty Images
Það er bull að Sergio Aguero hafi beðið um að yfirgefa Barcelona eftir að landi hans Lionel Messi fór til Paris Saint-Germain.

Sögusagnir voru um það á dögunum að það væri klásúla í samningi Aguero sem myndi hleypa honum annað ef Messi væri ekki samningsbundinn spænska félaginu.

Það er talið að Messi hafi spilað stórt hlutverk í ákvörðun Aguero að ganga í raðir Barcelona frá Manchester City. Þeir eru saman í argentínska landsliðinu.

Aguero harðneitar þessum fréttum og er virðist vera ekki á förum þrátt fyrir brottför Messi.

„Ég veit ekki af hverju það var talað um þetta. Þegar ég skrifaði undir þá hafði Leo ekki skrifað undir neitt," sagði Aguero.

„Þeir voru nálægt samningum. Það var bullað um einhverja klásúlu sem var aldrei til staðar."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner