Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 10. nóvember 2018 15:10
Ívan Guðjón Baldursson
Sol Bamba laug að dómaranum og slapp við spjald
Mynd: Getty Images
Sol Bamba gerði dramatískt sigurmark Cardiff gegn Brighton í dag og reif sig úr treyjunni í fagnaðarlátunum.

Miðvörðurinn slapp þó við gult spjald eftir stutt samtal við Martin Atkinson dómara og var hann spurður út í málið að leikslokum.

„Dómarinn kom að mér og spurði hvort ég hefði farið úr treyjunni í fagnaðarlátunum. Ég svaraði neitandi," sagði Bamba.

„Þetta er frábær sigur fyrir okkur, ég þurfti að bæta upp fyrir mistökin mín sem gerðu Brighton kleift að komast yfir."

Sigurmark Bamba hefði ekki átt að standa þar sem hann hafði áhrif á leikinn úr rangstöðu í aðdragandanum. Það mun þó væntanlega ekki trufla væran svefn í nótt eftir að hafa komið sínum mönnum úr fallsæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner