Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 11. janúar 2020 17:21
Brynjar Ingi Erluson
Einkunnir Man Utd gegn Norwich: Mata og Rashford bestir
Juan Mata og Anthony Martial í leiknum í dag
Juan Mata og Anthony Martial í leiknum í dag
Mynd: Getty Images
Manchester United átti í engum vandræðum með Norwich er liðin mættust á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni í dag en leiknum lauk með 4-0 sigri United.

Marcus Rashford skoraði tvívegis í leiknum og þá lagði Juan Mata upp tvö mörk og sýndi að hann er enn með eitthvað fram á að færa í United-liðinu.

Manchester Evening News gaf einkunnir eftir leik en Mata og Rashford voru bestu menn vallarins. Mason Greenwood átti góða innkomu og skoraði og fær einnig 8.

Einkunnir Man Utd:

David De Gea 7
Aaron Wan-Bissaka 6
Victor Lindelöf 6
Harry Maguire 7
Brandon Williams 7
Nemanja Matic 6
Fred 6
Andreas Pereira 7
Juan Mata 8
Marcus Rashford 8
Anthony Martial 7
Varamenn:
Mason Greenwood 8
Daniel James 6
Angel Gomes 6
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner