Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 11. janúar 2020 21:25
Brynjar Ingi Erluson
Fótbolta.net mótið: Grótta fagnaði fjögurra marka sigri
Kristófer Orri Pétursson skoraði tvö
Kristófer Orri Pétursson skoraði tvö
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grótta 4 - 0 Grindavík
1-0 Pétur Theodór Árnason
2-0 Óliver Dagur Thorlacius
3-0 Kristófer Orri Pétursson
4-0 Kristófer Orri Pétursson

Grótta vann Grindavík 4-0 í riðli 2 A-deild Fótbolta.net mótsins í dag en leikurinn fór fram á Vivaldi-vellinum.

Pétur Theodór Árnason, sem var á dögunum valinn íþróttamaður Gróttu fyrir afrek sín með liðinu, kom heimamönnum yfir áður en Óliver Dagur Thorlacius bætti við öðru.

Kristófer Orri Pétursson gerði þá tvö mörk til viðbótar til að sigla sigrinum heim.

Fínasta byrjun Gróttu á undirbúningstímabilinu sem spilar í Pepsi Max-deildinni í sumar.

Í sama riðli gerði ÍA 2-2 jafntefli við Stjörnuna en þetta voru fyrstu leikir liðanna.

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner
banner