Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 11. janúar 2020 16:35
Aksentije Milisic
Klúður tímabilsins hjá Williams?
Mynd: Getty Images
Nú er leikur Manchester United og Norwich í gangi í ensku úrvaldeildinni. Heimamenn leiða leikinn 4-0 þegar þetta er skrifað en Marcus Rashford hefur gert tvö mörk og þá hafa Mason Greenwood og Anthony Martial einnig komist á blað.

United var 1-0 yfir í hálfleik en liðið hefur herjað á gestina í seinni hálfleik og gerði United tvö mörk á stuttum tíma. Staðan gat auðveldlega orðið 4-0 strax eftir þriðja markið en Brandon Williams, vinstri bakvörður liðsins, klúðraði þá algjöru dauðafæri.

Williams, sem hafði áður fiskaði vítaspyrnu sem Rashford skoraði úr, var þá mættur á fjærstöngina eftir fyrirgjöf og þurfti aðeins að koma boltann yfir línuna en hann þrumaði knettinum yfir markið.

Þetta ótrúlega færi má sjá hér fyrir neðan.

Brandon Williams horrible miss vs Norwich. from r/soccer




Athugasemdir
banner
banner