Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
banner
   mán 11. mars 2024 12:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðjón Pétur æft með FH - Hvar spilar hann í sumar?
Guðjón Pétur Lýðsson.
Guðjón Pétur Lýðsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Miðjumaðurinn Guðjón Pétur Lýðsson er enn án félags fyrir komandi tímabil. Í vetur hefur hann æft á æfingar með Val og að undanförnu hefur hann æft með FH.

Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður fótboltamála hjá FH, staðfestir við Fótbolta.net að Guðjón Pétur hafi æft með liðinu áður en það fór í æfingaferð til Spánar á dögunum. Engin ákvörðun hefur verið tekin um það hvort samið verði við Guðjón á þessum tímapunkti.

„Hann er búinn að vera að mæta á æfingar með okkur. Hann heyrði í Heimi og spurði hvort að hann mætti mæta, og það var minnsta mál," sagði Davíð við Fótbolta.net.

„Það hefur ekki verið rætt neitt frekar. Þeir eru úti núna. Þegar þeir koma heim þá verður það skoðað. Við höfum ekkert rætt framhaldið neitt."

„Það á bara eftir að koma í ljós."

Guðjón er 35 ára miðjumaður sem samdi við Grindavík sumarið 2022 og skoraði fimm mörk í 31 keppnisleik með liðinu. Hann sagði við Fótbolta.net undir lok síðasta árs að stefnan hjá sér væri að spila í efstu deild í sumar.

Ásamt því að spila með Grindavík þá hefur Guðjón Pétur leikið með Haukum, Breiðabliki, Stjörnunni, Álftanesi, Val, KA, Stjörnunni, ÍBV og Helsingborg í Svíþjóð á sínum ferli.
Athugasemdir
banner
banner