Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
banner
   mán 11. mars 2024 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mac Allister pirraður: Augljós vítaspyrna
Alexis Mac Allister.
Alexis Mac Allister.
Mynd: EPA
Liverpool-menn voru ósáttir við að fá ekki vítaspyrnu í blálokin gegn Manchester City í stórleiknum gegn Manchester City í gær.

City var að reyna að hreinsa frá eftir hornspyrnu þegar Jeremy Doku sparkaði í Alexis Mac Allister sem félll samstundis til jarðar en leikurinn hélt áfram.

Dómarinn Michael Oliver dæmdi ekki víti og VAR-dómarinn Stuart Attwell ákvað ekki að bregðast við þrátt fyrir að hafa skoðað atvikið.

Mac Allister hefur núna tjáð sig um málið sjálfur en hann er virkilega ósáttur við að hafa ekki fengið víti.

„Mér finnst þetta augljós vítaspyrna. Ég þarf ekki að segja meira en það. Mér fannst dómarinn standa sig vel í leiknum en hann gerði stór mistök á síðustu mínútu leiksins," sagði Mac Allister.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner