Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 11. mars 2024 08:45
Elvar Geir Magnússon
Sjöðu mörkin: KA skoraði eftir skot Daníels frá eigin vallarhelmingi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KA vann 3-0 sigur gegn Leikni í Lengjubikarnum um helgina en hér að neðan má sjá mörkin úr leiknum.

Ásgeir Sigurgeirsson skoraði tvívegis í leiknum en annað mark KA kom eftir skot hins sparkvissa Daníels Hafsteinssonar frá eigin vallarhelmingi.

Markið skráist hinsvegar sem sjálfsmark markvarðarins Bjarka Arnaldarsonar þar sem boltinn fór í slána, í bakið á Bjarka og inn. Engu að síður hörkuskot frá Daníel.

Þrátt fyrir sigurinn náði KA ekki að komast í undanúrslit Lengjubikarsins þar sem ÍA vann riðilinn á markatölu.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner