Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 11. júní 2022 17:44
Brynjar Ingi Erluson
2. deild: Cokic skaut Ægi upp í annað sæti
Dimitrije Cokic gerði bæði mörk Ægismanna
Dimitrije Cokic gerði bæði mörk Ægismanna
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Ægir 2 - 1 Völsungur
0-1 Áki Sölvason ('3 )
1-1 Dimitrije Cokic ('45 )
2-1 Dimitrije Cokic ('88 )

Ægir er komið upp í annað sæti 2. deildar karla eftir 2-1 sigur á Völsungi á Þorlákshafnarvellinum í dag.

Áki Sölvason, sem er á láni frá KA, kom Völsungi yfir á 3. mínútu leiksins áður en Dimitrije Cokic náði inn mikilvægu jöfnunarmarki undir lok fyrri hálfleiks.

Cokic var síðan aftur á ferðinni undir lok leiks og tryggði Ægismönnum stigin þrjú með marki á 88. mínútu.

Ægir fer upp í annað sæti með sigrinum og er með 16 stig eftir sex leiki en Völsungur í þriðja sæti með 13 stig.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner