Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 11. júlí 2021 07:00
Victor Pálsson
Mancini: Þurfum að passa okkur á Sterling
Mynd: EPA
Ítalía þarf að passa sig á Raheem Sterling í kvöld að sögn landsliðsþjálfarans Roberto Mancini.

England og Ítalía mætast í úrslitaleik EM í kvöld og þar mætir Sterling til leiks sem hefur verið öflugur á mótinu til þessa.

„England er með gott lið og eru með marga góða leikmenn á bekknum. Við komumst hingað líka og það þýðir að við séum líka með gott lið," sagði Mancini.

„Sterling hefur bætt sig mikið og er afskaplega fljótur, við þurfum að passa okkur á honum."

„Þeir eru líka með Harry Kane. Í sókninni eru þeir með góða tekníska og hraða leikmenn."

Athugasemdir
banner
banner
banner