Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 11. júlí 2021 06:00
Victor Pálsson
Segir Liverpool henta Mbappe best
Mynd: EPA
Liverpool myndi henta leikstíl Kylian Mbappe best af enskum liðum að sögn fyrrum miðjumannsins Emmanuel Petit.

Mbappe er einn besti sóknarmaður heims en hann er aðeins 22 ára gamall og leikur með Paris Saint-Germain.

Fjölmörg lið myndu vilja fá Mbappe í sínar raðir en launakröfur hans eru gríðarlega háar.

Samkvæmt Petit gæti Liverpool klárlega notað Mbappe og myndi hann henta leikstíl liðsins vel.

„Það eru nokkur lið í heiminum sem geta borgað honum þessi laun svo það er möguleiki á að hann endi á Englandi," sagði Petit

„Það lið sem hentar honum best er mögulega Liverpool."
Athugasemdir
banner
banner