Luca Campanaro, 14 ára gamall markvörður hjá Bedgrov Dynamos í Englandi, lést eftir árekstur í leik liðsins gegn Hillingdon á sunnudaginn.
Luca var fluttur með þyrlu á spítala þar sem hann lést af sárum sínum í gær.
Luca var fluttur með þyrlu á spítala þar sem hann lést af sárum sínum í gær.
Luca var mikill fótboltaáhugamaður og stuðningsmaður Tottenham.
„Hann lést við það að gera það sem hann elskaði," sagði Davee Garricks fjölskylduvinur Luca eftir þetta hörmulega slys.
Búið er að setja upp styrktarsíðu fyrir fjölskyldu Luca en nú þegar hafa safnast yfir tvær milljónir króna þar.
Athugasemdir