Leikurinn á laugardag 17:30
Meðal leikja helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni er viðureign Tottenham og Everton á Wembley. Leikurinn verður á morgun laugardag klukkan 17:30.
Harry Winks, leikmaður Tottenham, missir af leiknum á morgun þar sem hann er að glíma við meiðsli í ökkla.
Danny Rose og Toby Alderweireld eru enn fjarri góðu gamni.
Tyrkneski sóknarmaðurinn Cenk Tosun, sem keyptur var á 27 milljónir punda frá Besiktas, er í líklegu byrjunarlið Guardian.
Gylfi Þór Sigurðsson og Wayne Rooney byrja einnig ef spá Guardian rætist.
Varnarmaðurinn Michael Keane er enn fjarri góðu gamni en hann er á meiðslalistanum líkt og Idrissa Gueye.
Tottenham er í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar en Everton í því níunda.
Athugasemdir