Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 12. mars 2024 16:16
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fréttirnar sem stuðningsmenn Tottenham vilja heyra
Micky van de Ven.
Micky van de Ven.
Mynd: Getty Images
Micky van de Ven, varnarmaður Tottenham, meiddist í 0-4 sigrinum gegn Aston Villa um síðustu helgi en sem betur fer fyrir Spurs er ekki búist við því að það sé alvarlegt.

Fjölmiðlamaðurinn Paul O'Keefe, sem er með góð tengsl innan Tottenham, segir að búist sé við því núna að Van de Ven muni missa af leiknum gegn Fulham og snúi svo aftur eftir landsleikjahléið núna í mars.

Það er mikilvægt fyrir Spurs að fá Van de Ven sem fyrst til baka en hann er algjör lykilmaður í liðinu.

Samkvæmt Telegraph þá mun Spurs fá staðfesta niðurstöðu á næsta sólarhringnum.

Tottenham er sem stendur í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar, tveimur stigum á eftir Aston Villa.
Athugasemdir
banner
banner