Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 12. september 2021 13:42
Hafliði Breiðfjörð
Stuðningsmaður Víkings henti bjórdós inn á völlinn (Myndir)
Dósinni hent í Víkinni í gær. Neðst í fréttinni má sjá nokkrar myndir af atvikinu.
Dósinni hent í Víkinni í gær. Neðst í fréttinni má sjá nokkrar myndir af atvikinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur vann í gær 3 - 0 sigur á HK á heimavelli sínum í Fossvoginum, heimavelli hamingjunnar eins og hann er oft kallaður.

Það virðist reyndar sem hamingjan hafi verið of mikil hjá sumum stuðningsamanna Víkinga en eitthvað var um ölvun meðal þeirra hörðustu.

Einn réði ekki við tilfinningar sínar þegar hann var ósáttur við dómgæslu og henti bjórdós inn á völlinn eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

Boltastelpan sem stendur hjá virðist þá fá gusuna yfir sig en Smári Stefánsson aðstoðardómari benti Jóhanni Inga Jónssyni dómara á dósinu þar sem hún lenti á vellinum.
Athugasemdir
banner