Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   mið 13. mars 2024 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Einkunnir Bournemouth og Luton: Semenyo fullkomnaði endurkomuna
Antoine Semenyo
Antoine Semenyo
Mynd: EPA
Ross Barkley skoraði þriðja mark Luton
Ross Barkley skoraði þriðja mark Luton
Mynd: EPA

Það var mangaður fótboltaleikur í ensku úrvalsdeildinni í kvöld þar sem Bournemouth vann endurkomusigur á Luton.


Luton var þremur mörkum yfir í hálfleik en Dominic Solanke kom Bournemouth af stað en Antoine Semenyo skoraði tvö mörk og fullkomnaði endurkomuna.

Hann var valinn maður leiksins að mati Sky Sports og fékk átta í einkunn. Ryan Christie og Solanke fengu átta.

Japanski bakvörðurinn Daiki Hashioka var í fyrsta sinn í byrjunarliði Luton í kvöld en hann átti ansi erfitt uppdráttar og fær aðeins fjóra í einkunn. Alfie Doughty var besti maður Luton.

Bournemouth: Neto (5), Smith (6), Mepham (7), Zabarnyi (7), Outtara (6), Christie (8), Cook (7), Semenyo (9), Scott (6), Sinisterra (7), Solanke (8).

Varamenn: Enes Unal (7), Tavernier (6), Adams (6), Hill (Spilaði ekki nóg), Billing (Spilaði ekki nóg)

Luton: Kaminski (5), Burke (6), Mengi (5), Hashioka (4), Kabore (7), Clark (7), Barkley (7), Doughty (8), Ogbene (7), Chong (7), Morris (6).

Varamenn: Mpanzu (6), Woodrow (6).


Athugasemdir
banner