Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   mið 13. mars 2024 21:29
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England: Ótrúleg endurkoma hjá Bournemouth
Solanke kom Bournemouth í gang
Solanke kom Bournemouth í gang
Mynd: Getty Images
Antoine Semenyo
Antoine Semenyo
Mynd: EPA

Bournemouth 4 - 3 Luton
0-1 Tahith Chong ('9 )
0-2 Chiedozie Ogbene ('31 )
0-3 Ross Barkley ('45 )
1-3 Dominic Solanke ('50 )
2-3 Ilya Zabarnyi ('62 )
3-3 Antoine Semenyo ('64 )
4-3 Antoine Semenyo ('83 )


Það var ótrúlegur leikur á Vitality vellinum í Bournemouth í kvöld þar sem heimamenn fengu Luton í heimsókn. Þessi leikur var upphaflega í desember en var flautaður af þegar Tom Lockyer fyrirliði Luton fór í hjartastopp.

Gestirnir hófu leikinn mun betur og voru með þriggja marka forystu í hálfleik. Ross Barkley nefbrotnaði um helgina en spilaði þó ekki með grímu í kvöld. Hann skoraði þriðja mark Luton.

Þessum leik var hvergi nærri lokið en Bournemouth tókst að koma til baka og næla í öll stigin.

Dominic Solanke hóf endurkomuna en tvö mörk frá Antoine Semenyo fullkomnuðu endurkomuna og sigur Bournemouth staðreynd.

Með sigri hefði Luton komist upp úr fallsæti en liðið er áfram þremur stigum á eftir Nottingham Forest.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner