Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 13. mars 2024 19:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lockyer hitti hetjurnar sínar - „Þakklátir að hann sé með okkur"
Mynd: Getty Images

Það var tilfinningaþrungin stund fyrir Tom Lockyer, fyrirliða Luton, í kvöld þegar hann mætti á Vitality völlinn.


Luton heimsækir Bournemouth í kvöld en liðin áttust við í desember en leikurinn var flautaður af þegar Lockyer fór í hjartastopp.

Hann er mættur á Vitality völlinn í kvöld og hitti læknateymið sem bjargaði lífi hans.

„Þetta eru hetjur. Þetta er bara fótbolti og það er svo miklu mikilvægari hlutir þarna úti. Það sem þetta fólk gerði við mikið álag var ótrúlegt og þau eiga skilið alla athygli og væntumþykju sem þau munu fá," sagði Rob Edwards stjóri Luton.

„Hann er mjög svekktur að geta ekki spilað en fyrir mér er þetta frábær saga og við þurfum að fagna því. Hann getur notið lífsins með nýfæddu barni og við gátum hitt hetjurnar sem björguðu lífi hans. Við erum þakklátir að hann sé hérna með okkur."


Athugasemdir
banner
banner
banner