Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 13. mars 2024 18:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Szoboszlai: Ég vil vinna alla titla sem í boði eru
Mynd: Getty Images

Liverpool á möguleika á því að vinna alla titla sem í boði eru á þessari leiktíð en liðið hefur þegar unnið enska deildabikarinn.


Liverpool er í 2. sæti úrvalsdeildarinnar stigi á eftir Arsenal eftir jafntefli gegn Manchester City um síðustu helgi.

Liðið er svo gott sem komið í átta liða úrslit Evrópudeildarinnar eftir 5-1 sigur á Sparta Prag ytra en síðari leikurinn fer fram á Anfield á morgun.

Dominik Szoboszlai miðjumaður Liverpool ræddi við fjölmiðla í aðdraganda leiksins á morgun en hann er bjartsýnn að liðinu takist að vinna alla titlana á þessari leiktíð.

„Við höfum þegar unnið einn og eigum þrjá eftir. Ég vil vinna alla fjóra en við verðum að fara í einn leik í einu. Við megum ekki horfa svona langt fram í tímann því það er mikið eftir, margir leikir, Evrópa, Enski bikarinn á sunnudaginn og svo hefst úrvalsdeildin aftur eftir landsleikjafrí. Við erum tilbúnir," sagði Szoboszlai.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner