Man Utd líklegast að fá Olise - Man Utd til í að hlusta á tilboð í Rashford - Juve leiðir kapphlaupið um Greenwood
   mán 13. apríl 2020 13:44
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Schmeichel svaraði Hjörvari: Mælti með Van der Sar
Van der Sar gekk svo í raðir United 2005.
Van der Sar gekk svo í raðir United 2005.
Mynd: Getty Images
Peter Schmeichel, fyrrum markvörður Manchester United, var á fullu síðasta klukkutímann að svara spurningum á samfélagsmiðlinum Twitter.

Hann svaraði meðal annars spurningu frá sjálfum Dr. Football, Hjörvari Hafliðasyni.

Hjörvar spurði dönsku goðsögnina: „Sæll stóri maður. Mæltirðu með einhverjum markvörðum fyrir Sir Alex þegar þú fórst 1999? Ég geri ráð fyrir því að þú hafir ekki sagt honum að fá Mark Bosnich."

Schmeichel svaraði því að hann hefði mælt með Hollendingnum Edwin van der Sar sem fór til Juventus.

Van der Sar gekk svo í raðir United 2005 og vann hann Meistaradeildina með félaginu árið 2008.


Athugasemdir
banner
banner
banner