Bayern hefur áhuga á Bruno - Man Utd ætlar að bjóða í Branthwaite - Frank og McKenna orðaðir við stjórastarfið á Old Trafford
   mið 01. maí 2024 10:02
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Bellingham reyndi að koma Kane úr jafnvægi
Kane skorar úr vítinu og Bellingham fylgist með
Kane skorar úr vítinu og Bellingham fylgist með
Mynd: EPA
Enski landsliðsmaðurinn Jude Bellingham, leikmaður Real Madrid, reyndi að koma landa sínum, Harry Kane, leikmanni Bayern úr jafnvægi þegar sá síðarnefndi var að fara taka vítaspyrnu í leik liðanna í gær.

Liðin mættust í fyrri leiknum í undanúrslitum Meistaradeildarinnar á Allianz Arena í Bayern í gær. Kane skoraði úr vítaspyrnu á 57. mínútu til að koma sínum mönnum í 2-1 forystu.

„Ég vissi ekki hvað hann sagði en ég talaði við hann eftir á og hann sagði: 'Ég veit að þú ætlar að skjóta vinstra megin við markmanninn'," sagði Kane.

„Ég vissi af Bellingham þarna en ég vissi ekki hvað hann sagði en ég skaut vinstra megin, það var gott fyrir mig því ég sá að markmaðurinn fór aðeins of snemma af stað og ég kláraði þetta."

Vinicius Junior skoraði einnig úr vítaspyrnu og tryggði Real Madrid jafntefli fyrir leik liðanna á Bernabeu í næstu viku.


Athugasemdir
banner
banner
banner